Ehemmmm.... ég er ekki í neinu liði, s.s. fótbolta, botcha (ekki guðmund hvernig þetta er skrifað
eða neitt... en ef ég vildi komast inní eitthvað lið þá veit ég að ég get a.m.k. alltaf komist í lið lélegustu núlifandi (þá meina ég lifandi síður) bloggara!!!!
Það hefur margt gerst síðan síðast. Ekki alveg viss um að ég nenni að telja það upp, en hér kemur smá:
Það var snilld að fá fjölskylduna hans Tommys hingað og fiskidagshelgin var heilt á litið snilld (ég skrifaði reyndar síðast einmitt á Fiskidaginn).
Ég er enn og einu sinni ráðvillt með þennan blessaða skóla ( hvað annað er nýtt???). Veit ekki rass í bala
En það er svosem allt í lagi bara á meðan ég fíla það sem ég er að gera!
Varð enn einu sinni óheppin með tölvu þegar ég fjárfesti í nýrri ekki fyrir löngu. Falleg rauð eeeelska, kom í ljós að flagð er undir fögru, en hún var uppsett á ungversku!!!!! Vinur pabba kom og ætlaði að hjálpa til með hana, en hann er ungverskur. Þarna komu hvorki tungumálahæfileikar hans né einstök tölvukunnátta mín (NOT) að gagni... það þurfti að skipta um harðann í henni blessaðri!!
Tommy fór til Svíþjóðar í skóla, eins og stóð alltaf til. Maður vissi alltaf að fjarsamband væri erfitt en men ó men.... Það endaði bara með því að við hættum saman, ólík plön. Erum samt ágætis vinir.
Ég fór til Stokkhólms um síðustu helgi að hitta Johönnu (hún HATAR þegar nafnið hennar er fallbeygt á íslenska vísu
Við brölluðum ýmislegt sniðugt, hún er besti guide ever... fór með mig á alla bestu kokteilstaðina
Það er það sem þarf til að gera mig hamingjusama!!! Verslaði smá, en við það tókst mér að slíta tölu úr einhverjum HELV dieselpels sem var ekkert í ódýrari kantinum. Við það brá mér svo ég rakst á næsta borð og VELTI því
Hvernig er hægt að vera svona klaufskur, upplifði mig sem 300 kíló og það fer mér bara ekki!
Svo þurftum við að láta svæfa elsku Kela kött í dag. Hann var búinn að vera veikur í smá tíma greyið, átti samt að reyna að lækna hann í dag. Kom í ljós að það var ekki hægt. Sumum finnst ég kannski vera lúði en hann var einn úr fjölskyldunni (15 ára) og ég grenjaði úr mér augun!
Núna ætla ég að redda mér einhverju í svanginn.
*Herdís* sem sneri tímabundið aftur til bloggsins.